Velferðasjóður barna styrkir frjálsíþróttaskólan

Velferðasjóður barna útdeildi styrkjum að upphæð 80 milljónum króna til styrktar tómstundastarfi fyrir börn á Íslandi í sumar. Frjálsíþróttaskóli UMFÍ fékk styrk úr sjóðnum til að niðurgreiða þátttökugjöld í skólanum sem verður starfræktur á níu stöðum á landinu í sumar. Þátttökugjald í skólann verður tíu þúsund krónur með leiðbeinendum og fullu fæði.

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ verður í sumar starfræktur í samvinnu við Frjálsíþróttasambands Íslands og héraðssamböndin innan UMFÍ. Frjálsar íþróttir er frábær félagsskapur, hreyfing, skemmtun og útivera. Starfræktir verða frjálsíþróttaskólar víðsvegar um landið í sumar fyrir ungmenni 11-18 ára.

Frjálsíþróttaskólinn er spennandi tækifæri fyrir ungmenni sem vilja reyna sig í fyrsta sinn eða efla sig í frjálsum íþróttum. Áhugasamir velja þann stað sem hentar hverjum og einum og taka um leið þátt í góðum félagsskap. Auk íþróttaæfinga verða líflegar kvöldvökur, varðeldur, gönguferðir og ýmsar óvæntar uppákomur.

Frjálsíþróttaskólinn í sumar verður starfræktur á níu stöðum vítt og breitt um landið, Borgarnesi, Laugum í Reykjadal, Ísafirði, Vík í Mýrdal, Kópavogi, Egilsstöðum, Sauðárkróki, Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði. Þátttakendur dvelja í íþróttabúðum á viðkomandi stað frá mánudegi til föstudags. Nánari upplýsingar er gefnar í síma 568-2929

Hægt er að skrá sig á Sauðárkróki á umss@simnet.is eða í síma 453 5460