Skráning iðkenda

Skráning í ABLER

Kæru forráðamenn, iðkendur og aðrir Skagfirðingar

Nú fara allar skráningar fyrir aðildarfélög UMSS í gegnum ABLER. 

Staðfestir æfingatímar og aðrar upplýsingar sem tengjast einstaka félögum og deildum verða einungis aðgengilegar skráðum iðkendum á sportabler og öll samskipti milli þjálfara og foreldra fara fram í gegnum forritið og því mikilvægt að kynna sér vel og sækja forritið.

Viljum við biðja ykkur að yfirfara vel allar upplýsingar (netföng og síma) en skráningar eru eru ákveðið öryggistæki og mikilvægt að réttar upplýsingar séu til staðar þegar ná þarf í aðstandendur. 

Ath. mikilvægt að kynna sér upplýsingar hér að neðan. Leiðbeiningar fyrir notkun frístundastyrks sem og skráningar- og notendaleiðbeiningar fyrir ABLER.


Fyrir skráningu smellið 

Mikilvægt að velja rétta íþróttagrein strax í upphafi (sjá mynd) verið er að vinna í því að öll aðildarfélög UMSS opnist í sér glugga


Leiðbeiningar fyrir innskáningu:

- Til þess að gerast notandi þarf forráðamaður að nýskrá sig og sækja ABLER snjallforritið.

- Fyrsta skrefið er að fara á skráningarsíðu aðildarfélagsins (notum í þessu tilviki Tindastól)

- Næst þarftu að skrá þig inn í hægra horninu uppi "Innskrá í ABLER". 

- Ef þú ert með ABLER aðgang nú þegar þá notar þú hann til að skrá þig inn. Ef þú ert ekki með ABLER aðgang þá velur þú nýskrá neðst í hægra horninu. 

- ATH mikilvægt er að þú skráir þig inn sem þú sjálfur en ekki sem barnið þitt.

- Ef nýskráning er valin þá þarftu að setja inn tölvupóst og kennitölu. Þegar þú smellir á Senda boð færðu staðfestingarpóst í tölvupósti og fylgir því ferli, velur lykilorð og ert þá kominn með aðgang. ATH staðfestingarpóstur gæti endað í Spam, junk eða trash í tölvupóstinum.

- Ef það kemur enginn staðfestingarpóstur á netfangið hjá þér eða villuboð kemur upp þá biðjum við ykkur að hafa samband í þjónustuver ABLER þar sem öll mál eru leyst. (Gyllta blaðran niðri í hægra horninu á abler.io)

- Þegar allt er klappað og klárt þá tekur við innskráning. Þegar þú skráir þig inn ertu beðinn um að auðkenna þig. Í kjölfarið lendir þú inn á island.is þar sem þú getur auðkennt þig með rafrænum skilríkjum.

- Þegar þú lýkur við auðkenningu þá ferðu beint inn á vefverslunina og getur keypt þá þjónustu sem er í boði. ATH þetta ferli þarftu bara að ganga í gegnum einu sinni. Efst vinstra megin sérðu sjálfan þig og börnin þín og uppi í hægra horninu sérðu yfirlit yfir reikninga og áskriftir sem þú hefur keypt.

Leiðbeiningar fyrir kaup á þjónustu í vefverslun:

Næsta skref er að finna þá þjónustu sem þú vilt kaupa fyrir sjálfan þig eða barnið þitt. Hægt er að nota frístundastyrk, greiðsludreifingu og systkinaafslátt í kaupferlinu. 

Skref 1 - Velja hvaða iðkanda þú ert að kaupa þjónustuna fyrir. ATH gætið að því að rétt íþróttagrein/þjónusta sé valin

Skref 2 - Ef önnur þjónusta hefur verið keypt sem fellur undir skilmála systkina eða fjölgreinaafslátt kemur hann í skrefi 2 í kaupferli. ATH. afslátturinn reiknast ekki af fyrstu skráningu, þ.a.s. afsláttur er ekki veittur af fyrsta gjaldi.

Skref 3 - Í þessu skrefi velur þú hvort þú viljir nota frístundastyrk eða ekki.  ATH þessi möguleiki kemur ekki upp ef þjónustan sem er til sölu býður ekki upp á frístundastyrk. (Ef valið er að ráðstafa frístundastyrk verður notandi sjálfkrafa beðin um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum)

Skref 4 -  Í skrefi 4 sérðu hvað þú átt mikinn frístundastyrk inni og í línunni fyrir neðan velur þú þá upphæð sem þú vilt ráðstafa. 

Skref 5 -  Hérna býður félagið upp á greiðsludreifingu (ef við á).

Skref 6 -  Hérna er greiðsluleið valin. Val um kredit-/ debit kort eða greiðsluseðil.

Hægra meginn í kaupferlinu er svo kvittun sem þú sérð hvernig upphæðin reiknast eftir notkun á frístundastyrk, systkinaafslætti og greiðsludreifingu.

Smelltu HÉR fyrir frekari Abler leiðbeiningar

Sjá einnig leiðbeingingar frá ABLER: Kaupa æfingagjöld/námskeið í gegnum vefverslun : Sportabler

Aðstoð: Ef ykkur vantar aðstoð eða hafið spurningar þá er þjónustuver ABLER alltaf opið