Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks

Um næstu helgi fagnar frjálsíþróttafólk í Skagafirði góðum árangri á liðnu ári og mun eflaust í leiðinni setja ný markmið fyrir komandi tímabili.  Uppskeruhátiðin verður haldin laugardaginn 8. nóvember, að Hótel Varmahlíð kl. 19, en verð á veisluföngum er 2.400 kr og er æskilegt að tilkynna Gígju þátttöku í síma 860 4498, fyrir kl 17 n.k. föstudag

Helsta spennan verður í kringum val á frjálsíþróttamanni ársins í Skagafirði en Ragnar Frosti Frostason var valinn í fyrra.