UMSS vill vekja athygli á því að þeir sem ætla á Unglingalandsmótið frá UMSS þurfa að skrá sig og greiða skráningargjald 3.000 kr. Lagt er inn á reikning 0310-26-1997, kt. 670269-0359, og nafn barnsins sett í skýringar á greiðslu. Mikilvægt er að þetta sé greitt strax, en ekki eftir mót.
Auk þess þurfum við að fá upplýsingar um hversu margir ætla að gista á tjaldsvæði og hvort fólk sé með tjald, fellihýsi, tjaldvagn eða húsbíl, til að tryggja að UMSS verði úthlutað nægilega stóru svæði.
Þeir krakkar sem eru að æfa fótbolta, körfubolta eða frjálsar hjá Tindastól eru beðnir um að tala við þjálfara sína um skráningar.
Tekið er á móti skráningum á umss@simnet.is, í gegnum síma 453-5460 eða á skrifstofu okkar að Víðigrund 5 á skrifstofutíma.