Nú hvetjum við alla til að fara á Unglingalandsmótið sem haldið verður í Borganesi um Verslunarmannahelgina. Þátttökugjald er 6.000 krónur fyrir hvert barn, en fari skráning fram í gegnum umss@simnet.is þá niðurgreiðir UMSS gjaldið um 3.000 krónur.
Einnig er hægt að skrá sig í síma 453-5460 á skrifstofutíma.
Svo allir verði sem best undirbúnir fyrir mótið, verður haldinn foreldrafundur þriðjudagskvöldið 13. júlí kl. 20:00 í Húsi Frítímans. Þar mun Ómar Bragi landsfulltrúi UMFÍ fara yfir málin fyrir mótið og mun svara öllum þeim spurningum sem tengjast mótinu. Nánar má svo fylgjast með á heimasíðu okkar umss.is