Badminton, bogfimi, borðtennis, frjálsar íþróttir, glíma, golf, grasblak, grashandbolti, hestaíþróttir, hjólreiðar, knattspyrna, kökuskreytingar, körfubolti, pílukast, skák, stafsetning, sund og upplestur.
Aðrar upplýsingar
Afþreying
Mótssvæðið verður iðandi af lífi frá morgni til kvölds. Við segjum, Íþróttir á daginn og tónlist á kvöldin. Öll kvöldin verða tónlistarviðburðir þar sem okkar besta tónlistarfólk kemur fram. Fjöldi viðburða fyrir börn yngri en 10 ára verða í boði og allt ókeypis.
Tjaldsvæði
Tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna er innifalið í þátttökugjaldi mótsins. Svæðið er staðsett á Kárastöðum sem er rétt utan við Borgarnes. Þeir sem óska eftir aðgengi að rafmagni á tjaldsvæði þurfa að ganga frá greiðslu fyrir því um leið og gengið er frá kaupum á þátttökugjaldi. Verð fyrir rafmagn er 4.900 kr. fram til 29. júli. Eftir þann tíma hækkar verð upp í 6.900 kr.
Tjaldsvæði mótsins er skipt upp í svæði eftir íþróttahéruðum. Þátttakendur á tjaldsvæði eru hvattir til þess að merkja við rétt nafn á íþróttahéraði svo mótshaldarar geti raðað tjaldsvæði upp eftir fjölda tjalda/hýsa frá hverju íþróttahéraði.
Á svæðinu verða snyrtingar, rennandi vatn, rafmagn og gæsla frá björgunarsveitum. Strætó mun ganga frá svæðinu að aðal keppnissvæðinu frá kl. 08:30 og fram yfir síðustu keppnisgrein.