Ungir og efnilegir íþróttamenn UMSS

Bríet Lilja Sigurðardóttir og Linda Þórdís Róbertsdóttir og U16 lið Íslands þegar þær urðu Norðurlan…
Bríet Lilja Sigurðardóttir og Linda Þórdís Róbertsdóttir og U16 lið Íslands þegar þær urðu Norðurlandameistarar í körfuknattleik í Svíþjóð 2014.

Norðurlandamót U16 og U18 ára landsliða fer fram í Finnlandi dagana 26.-30. júní næstkomandi. Mótið sem í tæpa tvo áratugi hefur farið fram í Svíþjóð verður nú haldið í Finnlandi. Tilkynnt hefur verið um íslensku U16 og U18 ára hópana fyrir verkefnið en í U18 hóp stúlkna eru Skagfirðingarnir Linda Þórdís B. Róbertsdóttir og Bríet Lilja Sigurðardóttir. 

Linda Þórdís B. Róbertsdóttir er leikmaður Tindastóls en leikur á Spáni um þessar mundir. Bríet Lilja Sigurðardóttir, sem áður lék með Tindastól, leikur nú með Þór Akureyri.

Heimild: Feykir.is