Rúnar Már Sigurjónsson
Skagfirðingurinn Rúnar Már Sigurjónsson skoraði bæði mörk Grasshoppers í sigrið liðsins gegn KR í Evrópudeildinni í gær, 2-1. Leikurinn fór fram á heimavell svissneska liðsins.
Fyrri leikurinn, sem fram fór Alvogen vellinum, fór 3-3 og því samalögð úrslit 5-4 og KR úr leik.
Morten Beck Andersen átti heiðurinn að marki KR í leiknum en Rúnar Már, sem nýlega gekk til liðs við Grasshoppers, skoraði bæði mörk Grasshoppers eins og fram kemur að ofan. Eftir þessi úrslit er ljós að öll íslensku liðin eru fallin úr Evrópukeppnum í ár.