UMF Tindastóll - Körfuknattleiksdeild

Linda Þórdís í baráttu um boltan. Mynd: karfan.is
Linda Þórdís í baráttu um boltan. Mynd: karfan.is

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er ekki eina landslið Íslands sem er að standa sig vel þessa dagana en U18 ára landslið stúlkna í körfubolta vann stórsigra á frænkum sínum frá Danmörku og Noregi á Norðurlandamóti yngri landsliða í körfuknattleik sem haldið er í Finnlandi. Í liðinu er að finna tvo Skagfirðinga. Næst mæta þær Svíum.

Um þessar mundir stendur Norðurlandamót yngri liða í körfuknattleik yfir í Finnlandi en U16 og U18 lið drengja og stúlkna héldu út síðastliðinn laugardag.
Á sunnudaginn var, unnu U18 ára landslið stúlkna Dani með öruggum hætti en leikurinn fór 39 - 62, Íslandi í vil. Silvía Rún Hálfdánardóttir var allt í öllu í leiknum en hún skoraði 17 stig, var með 6 stolna bolta og 8 fráköst. Þær Linda Þórdís B. Róbertsdóttir og Bríet Lilja Sigurðardóttir, fengu báðar mínútur í leiknum. Bríet Lilja skoraði 3 stig og greip 3 fráköst á næstum 9 mínútum. Þá var Linda Þórdís með 2 stig, greip 4 fráköst og gaf eina stoðsendingu á rúmum 9 mínútum. Á karfan.is má sjá frekari útlistingar á leiknum.

Í gær, öttu stúlkurnar kappi við Noreg og unnu stórsigur.
Stúlkurnar komu sterkar til leiks og leiddu nánast frá fyrstu mínútu. Þegar flautað var til leiksloka hafði liðið tryggt sér öruggan sigur, 83-41.
Stigaskor stúlknanna var mjög dreift og komust flestar á blað en Emilía Ósk Gunnarsdóttir skoraði flest stig, 14 alls og gaf þar að auki 4 stoðsendingar. 

Stúlkurnar frá Tindastól komu allar við sögu í leiknum, mismikið þó. Linda Þórdís greip 4 fráköst og varði 1 skot á tæpum 11 mínútum en Bríet Lilja átti tvo stolna bolta og eitt frákast á um 12 mínútum.


Heimild: Feykir.is