Ísrael Martin Concepción. Mynd: Feykir.is
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur komist að samkomulagi við Ísrael Martin Concepción um að hann komi aftur til félagsins og taki við stöðu framkvæmdastjóra körfuknattleiksdeildarinnar. Martin sem áður hefur verið innan raða félagsins mun koma að daglegum rekstri þess.
Auk framkvæmdastjórnunar mun Martin sjá um þjálfun hjá u-20 kvenna sem og að taka að sér stöðu aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki karla. Stefán Jónsson formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir félagið lýsa yfir mikilli ánægju og gleði með að vera komið með Martin aftur til starfa innan sinna vébanda.
Heimild: Feykir.is