Forsíðuna sem um ræðir prýðir þessi fallega mynd frá Hofsósi.
UEFA ( Knattspyrnusamband Evrópu ) gefur reglulega út blöð og bæklinga sem dreift er til allra Knattspyrnusambanda í Evrópu. Í nýjasta blaðinu er fjallað um litla Ísland og hvernig það komst á lokamótið í Frakklandi.
Á forsíðu blaðsins er skemmtileg mynd sem tekin er í Skagafirði, nánar tiltekið á Hofsósi og sýnir grasrótarknattspyrnu í sinni bestu mynd. „Ekki ónýtt að fá svona stuttu eftir að Tindastóll hlaut grasrótarverðlaun UEFA og KSÍ,“ segir í tilkynningu.