TINDASTÓLL Lengjubikarmeistari 2012 í körfuknattleik karla

Tindastóll sigrað Snæfell örugglega í úrslitaleik Lengjubikarsins 96-81 og eru því ákaflega verðskuldaðir Lengjubikarmeistarar 2012. Frábært bikarár að baki hjá Tindastól en það er ekki algengt að körfuknattleikslið komist  í tvo bikarúrslitaleiki á sama árinu.  Stjórn UMSS óskar þjálfara og leikmönnum til hamingju með þennan árangur.