Tindastóll sigraði Dalvík/Reyni í sínum fyrsta leik á tímabilinu, en leikið var í Lengjubikarnum.
Tindastóll byrjaði leikinn með miklum látum og skoruðu fjögur fyrstu mörkin í fyrri hálfleik. Annað var upp á teningnum í síðari hálfleik en þá mættu Dalvík/Reynir mun sterkari til leiks og skoruðu þrjú mörk. Þrátt fyrir að að Tindastólsmenn næðu ekki að að fylgja eftir frábærum fyrri hálfleik þá lönduðu þeir sigri í þessum mikla markaleik og endaði leikurin 4-3 Tindastólsmönnum í hag.
Markaskorar Tindastólls voru: Konráð, Árni Einar, Fannar Örn og Bjarki.