Sumarleikar Héraðssambands Þingeyinga voru haldnir að Laugum í Reykjadal 27. - 28. júní. Fjöldi Skagfirðinga sótti mótið og árangurinn gaf góð fyrirheit um komandi sumar.
Af árangri Skagfirðinga:
Sæþór Hinriksson (09-10) sigraði í 60m, 600m og langst.
Guðrún Ósk Gestsdóttir (15-16) sigraði í 80m og 300m grindahl.
Guðjón Ingimundarson (17-18) sigraði í 110m grindahlaupi
Halldór Örn Kristjánsson (17-18) sigraði í 300m grindahlaupi
Jóndís Inga Hinriksdóttir (11-12) sigraði í langstökki
Laufey Rún Harðardóttir (15-16) sigraði í kúluvarpi
Vignir Gunnarsson (17-18) sigraði í sleggjukasti
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir (13-17) sigraði í 300m grindahlaupi
Auk þess unnu Skagfirðingar til 11 silfurverðlauna og 5 bronsverðlauna.
Allir keppendurnir stóðu sig vel og við erum tilbúin undir viðburðaríkt sumar.