Rannís býður starfsfólki íþróttafélaga og annarra stofnana upp á námskeið um ungmennaskipti í æskulýðshluta Erasmus+ áætlunarinnar.
Ungmennaskipti eru verkefni þar sem hópar ungs fólks á aldrinum 13-30 ára frá tveimur eða fleiri Evrópulöndum hittast og kynnist lífi og menningu jafningja í verkefnum sem byggja á hugmyndafræðinni um óformlegt nám.
Námskeiðið er sérstaklega hugsað fyrir íþróttafélög sem vilja vinna með hópefli og liðsanda innan sinnar hreyfingar án þess að vera með fókus á æfinga- eða keppnisferð. Verkefnin eru eins og stækkuð útgáfa af pizzukvöldi eða sambærilega hittingi hjá hópnum.
Erasmuns+ áætlunin styrkir gistingu og uppihald þátttakenda. Lágmarksfjöldi þátttakenda er 16 samtals (sem dæmi átta frá Íslandi og átta frá öðru landi) en hámarksfjöldinn er 60 þátttakendur. Ungmennaskiptin geta staðið yfir í 5-21 dag fyrir utan ferðadaga.
Námskeiðið fer fram 12. september næstkomandi á Reykjavík Hótel Natura (gamla Hótel Loftleiðir) frá klukkan 09-17:00.
Námskeiðinu stýrir Jo Clayes sem hefur áratugalanga reynslu af því að kenna fólki að búa til ungmennaskiptaverkefni.
Boðið verður upp á hádegismat á meðan á námskeiðinu stendur.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Námskeið fyrir ungmennaskipti tengd íþróttafélögum
Námskeiðið er frítt fyrir þátttakendur en það þarf að skrá sig fyrir föstudaginn 1. september næstkomandi í eftirfarandi slóð.
Skráning hér: https://forms.office.com/e/f6TekxaQ8D