Strákarnir leika til undanúrslita um Íslandsmeistaratitil í dag

Í dag kl. 16:00 fer fram undanúrslitaleikur um Íslandsmeistaratitil á milli Þórs og Tindastóls/Hvatar á Þórsvellinum í 3. flokki.

Það  er um að gera að fjölmenna og hvetja liðið.

Sameiginlegt lið Tindastóls og Hvatar er mjög sterkt og hefur það m.a. fengið liðstyrk alla leið frá Siglufirði en Guðni Ásgeirsson miðvallarlelikmaður hefur verið iðinn við að sækja æfingar og keppt með liðinu í sumar.

Lið Þórs er sagt leika góða knattspyrnu og því þarf ekkert annað en toppleik til þess að komast í úrslitaleikinn.