Samráðsfundur UMFÍ

Samráðsfundur UMFÍ verður helgina 15. - 16. mai nk. á Sauðárkróki. Fundurinn hefst á laugardegi kl. 13.00. Farið verður yfir starf sambandsaðila og UMFÍ og málefni hreyfingarinnar rædd. Fundargestir, formenn og framkvæmdastjórar héraðssambanda og félaga eru hvattir til að koma fram með sín sjónarmið og áherslur. Sunnudaginn 16. mai verður sérstök kynning á Landsmótinu og Unglingalandsmótinu þar sem farið verður yfir alla þætti Landsmótsins og reynt að svara þeim fyrirspurnum sem kunna að koma fram á fundinum.