Reykvíkingar etja kappi við Skagfirðinga á laugardaginn

Á Sauðárkróksvelli fer fram mikilvægur leikur  laugardaginn 30. ágúst kl. 14 en þá mæta ÍR ingar til leiks.

Leikurinn er sérlega mikilvægur fyrir Tindastól í slagsmálunum neðri hluta 2. deildarinnar en leikurinn skiptir minna máli fyrir topplið ÍR sem búið að tryggja sér sæti í 1. deild að ári.  

Tindastólsmenn hafa átt ágæta spretti í deildinni í sumar og nú er að vona að þeir láti virkilega fætur standa fram úr buxum og nái stigum út út leiknum.