Ráðstefnan Konur og íþróttir: forysta og framtíð verður haldin í dag, í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru konur í forystuhlutverki í stjórnum, dómgæslu og þjálfun. Rætt verður um helstu áskoranir sem konur í íþróttum mæta og þau tækifæri sem þeim býðst. Hvers vegna er það mikilvægt að konur séu áberandi í forystu í íþróttahreyfingunni, hvort sem er í stjórnum íþróttafélaga og íþróttasambanda, í dómgæslu eða þjálfun á afreksstigi.
Ráðstefnan fer fram á Fosshóteli, Þórunnartúni 1 á milli klukkan 09:00 – 12:30 og er orðið uppselt.
Streymt verður frá viðburðinum á Facebook síðu viðburðarins, Nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook: Konur & íþróttir - forysta og framtíð | Facebook
Beina streymið verður á Facebook og YouTube: Beint á YouTube
Dagskrá
Setning ráðstefnunnar
Olga Bjarnadóttir, annar varaforseti ÍSÍ.
Eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta?
Viðar Halldórsson félagsfræðingur
Ferðalagið innan knattspyrnuheimsins
Klara Bjartmarz, fráfarandi framkvæmdastjóri KSÍ
Tækifæri til að hafa áhrif
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands
Pallborðsumræður
Að fóta sig í dómgæslu
Bríet Bragadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari
Segðu já!
Erna Héðinsdóttir, dæmir á ÓL í París í lyftingum
Mikilvægi dómgæslu í íþróttum
Hlín Bjarnadóttir, dæmir á ÓL í París í áhaldafimleikum
Hvernig breytum við leiknum?
Hulda Mýrdal, Heimavöllurinn
Hvenær borðið þið eiginlega?
Díana Guðjónsdóttir handboltaþjálfari
Að þjálfa konur vs karla, er einhver munur?
Gunnar Páll Jóakimsson frjálsíþróttaþjálfari
Konur í þjálfun og þjálfun á konum í knattspyrnu
Lára Hafliðadóttir situr í stjórn HKK
Hvað gerum við nú? – stutt rafræn samantekt
Áfram veginn!
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ