Ráðstefnan „ÍÞRÓTTIR 2023” verður haldin 1.- 2. febrúar í Háskólanum í Reykjavík. Að ráðstefnunni standa Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Háskólinn í Reykjavík og RIG – Reykjavík International Games.
Ráðstefnan er þrískipt og fjallar fyrri dagurinn um þjálfun afreksíþróttafólks og seinni dagurinn um íþróttir barna og ungmenna og stjórnun íþróttafélaga. Fjölmargir spennandi fyrirlestrar verða á ráðstefnunni og meðal fyrirlesara verða Elísabet Gunnarsdóttir, Vésteinn Hafsteinsson, Else-Marthe Sørlie Lybekk, Daniel Gould, og fleiri sérfræðingar. Athugið að ráðstefnan fer fram á ensku.
Dagskrá ráðstefnunnar, upplýsingar um fyrirlesara ásamt upplýsingum um skráningu og streymi má finna hér: https://www.rig.is/dagskra2023