Héraðsmót UMSS í hestaíþróttum verður haldið á Hólum 8.-9. maí. Mótið byrjar kl 14.00 og knapafundur er kl. 13.00. Keppt verður í eftirfarandi keppnisgreinum ef næg þátttaka fæst:
- Fjórgangur (V1)
- Tölt (T1)
- Slakatauma tölt (T2) (einn flokkur)
- Fimmgangur (F1) (einn flokkur)
- Gæðingaskeið (PP2) (einn flokkur)
- 100 metra skeið
- Léttur fjórgangur (V5)
- Létt tölt (T7)
Skeiðkappreiðar verða haldnar á miðvikudag 6. mai á vellinmum á Sauðárkróki og mun skeiðfélagið Kjarval stjórna því.
Allar þessar keppnisgreinar eru samkvæmt FIPO. Við skráningu þarf að gefa upp nafn og kennitölu knapa, nafn og fæðingarnúmer hests og keppnisgrein.
Tvær nýjar greinar eru á mótinu, fjórgangur V5 og tölt T7, og koma þær í staðinn fyrir fjórgang og tölt í öðrum flokki. Börn og unglingar mega keppa upp fyrir sig í T1 og V1.
Stutt lýsing á verkefnum greinanna:
V5:
-
Frjáls ferð á tölti
-
Hægt til milliferðar brokk
-
Milliferðar fet
-
Hægt til milliferðar stökk
T7:
- Hægt tölt – hægja skal niður á fet og skipta um hönd
- Frjáls ferð á tölti
Í báðum keppnisgreinunum (V5 og T7) verða tveir keppendur inni á vellinum í einu og riðið eftir þul. Því þarf að taka fram upp á hvora hönd skal ríða. Í fyrsta flokki er einn keppandi inná vellinum í einu.
Senda skal skráningar á eftirfarandi netföng: betajan@simnet.is eða unnurolof@internet.is .
Athugið að skráningu lýkur mánudaginn 4. mai kl. 22.00
Skráningargjald er 3.000 kr fyrir fyrstu skráningu en 1.500 kr á næstu skráningar hjá sama knapa. Endurgreiðsla fæst einungis gegn framvísun dýralæknisvottorðs.
Hestaíþróttaráð Skagafjarðar UMSS