Öflugir Skagfirðingar í úrvalshópi FRÍ

Rétt fyrir miðjan nóvember verða æfingabúðir á Akureyri fyrir úrvalshóp unglinga (15-22 ára) í frjálsum íþróttum. Þarna kemur saman allt efnilegasta frjálsíþróttafólk landsins. Alls hafa 9 ungmenni úr Skagafirði verið valin í þennan hóp.  Gísli Sigurðsson verður einn af  leiðbeinendum í búðunum.
Eftirtaldir keppendur UMSS eru í hópnum:
Árni Geir Sigurbjörnsson
Kári Steinn Karlsson
Arndís María Einarsdóttir
Ragnar Frosti Frostason
Elva Friðjónsdóttir
Aldís Rut Gísladóttir
Sunna Björk Atladóttir
Harpa Sif Jónsdóttir
Vala María Kristjánsdóttir