Nýr formaður frjálsíþróttadeildar U.M.F Tindastóls

Á stjórnarfundi í Frjálsíþróttadeild UMF Tindastóls 4. mars, tók Björn Jónsson, frá Fagranesi, við formennsku deildarinnar.

Aðrir stjórnarmenn eru Gísli Sigurðsson, Hafdís Steinarsdóttir, Helga Gígja Sigurðardóttir, Valbjörn Geirmundsson og Valgerður Vilmundardóttir, en þau voru kosin á aðalfundi deildarinnar 6. febrúar.  Aðalfundurinn fól þá stjórninni að velja sér formann.

Ný stjórn er boðin velkomin til starfa og þeim sem gengu úr stjórn á aðalfundinum, Trausta Jóel Helgasyni, Rögnu Hrund Hjartardóttur og Sigurjónu Skarphéðinsdóttur, er þakkað fyrir frábær störf fyrir deildina.