Námskeið á vegum Leiðtogaskóla UMFÍ

Á heimasíðu UMFÍ er farið nokkrum orðum um það sem í boði er í vetur á vegum Leiðtogaskóla UMFÍ. Stjórn UMSS hvetur aðildarfélög sín til að skoða það sem í boði er með það að sjónarmiði að efla sitt starf og minnir á að samþykkt er fyrir því innan stjórnar að styrkja helming kostnaðar við þátttöku í námskeiðum sem slíkum sem og þjálfaranámskeiðum. Minnt er á að senda inn erindi til stjórnar UMSS áður en farið er á námskeiðin.

Námskeið Leiðtogaskólans 2004- 2005 

1. Fundarstörf og fundarstjórnun:

Þátttakendur fá góða tilfinningu fyrir mikilvægi faglegrar fundarstjórnar, jafnt stærri sem smærri funda og hvernig þeir geta sjálfir fengið sem mest út úr fundarsetu sem fundarmenn.
Farið er yfir öll grundvallaratriði fundarskapa. Þátttakendur fá þjálfun í réttum fundarsköpum og að stjórna fundum. Tilgangurinn er að þjálfa þátttakendur í að taka virkan þátt í fundarstörfum og tryggja markvissan og góðan fund.

Námskeiðið er 6 tímar. 

2. Ræðumennska I

Eflir hæfni einstaklingsins til að taka til máls og tjá sig fyrir framan hóp af fólki.
Námskeiðið byggist upp á æfingum í framkomu, framsögn og uppbyggingu á ræðum. Farið er í margskonar form á ræðum s.s. söluræðum og tækifærisræðum.

Námskeiðið er 6 tímar.

3. Ræðumennska II

Námskeiðið er ætlað þeim sem lokið hafa Ræðunámskeiði I og/eða öðrum ræðunámskeiðum. Einnig er æskilegt að þátttakendur hafi einhverja reynslu af ræðumennsku.
Að efla þekkingu og þjálfun þátttakenda á málsnilld og framkomu á opinberum vettvangi. Námskeiðið er 5 tímar.

4. Að starfa í stjórn

Námskeiðið er ætlað fólki sem starfar eða ætlar að starfa í stjórn félagasamtaka. Farið verður í gegnum hlutverk stjórnarmanna. Mikilvægi nýrra hugsunarhátta í starfi félagsins. Hvernig fáum við nýtt fólk til að starfa með okkur. Félagsstarf í nútíma þjóðfélagi. Fundarstjórn og framkomuþjálfun.

Námskeiðið er 5 tímar.

5. Leiðtogaþjálfun

Öflugt námskeið ætlað þeim sem áhuga hafa á að starfa í forystusveit hvort heldur í félagsstarfi eða atvinnulífinu. Þátttakendur fá þjálfun sem undirbýr þá til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem forystumaður í félagi þarf að kunna skil á. Meðal annars verður farið í eftirfarandi: Fundarstörf og fundarstjórnun, framkomuþjálfun (ræðumensku), leiðtogafræðslu, samskipti við fjölmiðla, þjálfun fyrir viðtöl í fjölmiðlum, greinaskrif í fjölmiðla, ýmsar æfingar sem stuðlað geta að leiðtogahæfni.

Námskeiðið er fjórir dagar - næst haldið 18. -21. nóvember.

6. Foreldrastarf (2005)

Á námskeiðinu verður farið í hvernig við fáum fleiri foreldra til að starfa í félaginu okkar. Ætlað öllum sem áhuga hafa á heilbrigðu félagsstarfi.

7. Annað

Auk þess verður í boði styttri námskeið sem verða auglýst sérstaklega.