MÍ 11-14 ára í frjálsíþróttum

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 11-14 ára, fór fram í Vík í Mýrdal helgina 25.-26. júní.

Keppendur voru um 200, þar af 9 Skagfirðingar, sem allir stóðu sig með ágætum, og unnu m.a. til sex verðlauna.

Sæþór Hinriksson (11) sigraði í hástökki og varð í 3. sæti í langstökki.

Kolbrún Birna J. Þrastardóttir (12) varð í 2. sæti í spjótkasti.

Fríða Ísabel Friðriksdóttir (13) varð í 3. sæti í langstökki og 800m hlaupi.

Vésteinn Karl Vésteinsson (12) varð í 3. sæti í spjótkasti.