"Margir flottir krakkar í sunddeild Tindastóls"

Sundlið UMF Tindastóls
Sundlið UMF Tindastóls

Sundlið UMF Tindastóls æfir á fullu fyrir Unglingalandsmótið á Sauðárkróki sem haldið verður um verslunarmannahelgina.  Linda sundþjálfari fékk á æfinguna einn besta sundþjálfara landsins, Olympíufarann Ragnheiði Runólfsdóttur. Leist henni mjög vel á hópinn og sagði að það væru margir flottir krakkar að æfa sund á Króknum.  Ráðagerðir eru um frekari samvinnu við Ragnheiði um þjálfun.