Vakin er athygli á því að opnað hefur verið fyrir umsóknir í Lýðheilsusjóð vegna verkefna fyrir árið 2024. Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 15. nóvember 2023.
Áherslur við styrkveitingu fyrir árið 2024 verða eftirfarandi:
- Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu
- Aðgerðir sem miða að því að efla félagsfærni
- Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu
- Áfengis, vímu- og tóbaksvarnir
- Verkefni sem tengjast kynheilbrigði
- Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu
- Aðgerðir sem stuðla að jafnvægi þéttbýlis og dreifbýlis
Umsækjendur eru hvattir til þess að sækja tímanlega um og er það gert í umsóknargátt embættis landlæknis! Hér má finna slóð að vefgáttinni: https://styrkir.landlaeknir.is/#/
Til þess að sækja um í sjóðina er krafist innskráningar í umsóknargáttina með því að stofna aðgang. Skráning veitir umsækjanda gagnvirkan aðgang að umsóknarferli.
Nánari upplýsingar má finna á síðu Embætti landlæknis.