Tindastóll spilaði tvo leiki um helgina, þann fyrri á móti sameiginlegu liði Hamrana, Vina og ÍH í Lengjubikarnum og svo æfingarleik á móti Selfossi.
Fyrri leikurinn fór fram á Akranesi, strákarnir mættu einbeittir til leiks og náðu strax yfirhöndinni og unnu sanngjarnan 2-0 sigur. Ingvi Hrannar átti góðan leik og skoraði bæði mörk Tindasóls.
Sunnudagsmorguninn mætti Tindastóll svo Selfossi í æfingarleik, leikurinn fór fram í Kórnum, Tindastólsmenn byrjuðu leikinn ágætlega en 3 mörk í lok fyrri hálfleiks gerðu út um leikinn. Leikurinn endaði með 3-0 sigri Selfoss.