Landsmótið á Akureyri

Sarah Jane Emily Caird keppti í sjósundi á Landsmóti UMFÍ 2009 á Akureyri
Sarah Jane Emily Caird keppti í sjósundi á Landsmóti UMFÍ 2009 á Akureyri
Hvað heitir þú?
Ég heiti Sarah Jane Emily Caird
Í hverju kepptir þú og hvernig gekk?
Ég keppi í sjósundi. Sigurjón fékk mig til að keppa.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer                                 
svona langa vegalengd. Ég gerði þetta bara fyrir gamanið
en náði öðru sætinu.
Hvernig fannst þér á Landsmótinu?
Mér fannst þetta rosalega flott, það var tjald sem UMSS
 var með og þar gat maður fengið sér morgunmat. Mér fannst allir vinalegir og skemmtileg stemning.
Hvernig fannst þér aðstaðan á Akureyri
Mér fannst mjög fín aðstaða í Átaki, góð og skemmtilegt keppni, það var farið vel yfir      
öll öryggisatriði, flott keppni,
Gætirðu hugsað þér að fara aftur á Landsmót?
Jú, það væri gaman að keppa aftur í sjósundi, ef ég verð ekki drukknuðJ