Landsmót UMFÍ 50+ verður að þessu sinni haldið í Neskaupstað dagana 28. – 30. júní.
Mótið er blanda af íþróttakeppni og annarri skemmtun þar sem fólk á besta aldri hefur gaman saman.
Mótið er opið öllum þátttakendum sem verða 50 ára á árinu og eldri.
Keppt verður í 16 íþróttagreinum. Þar á meðal í boccía, golfi og pútti, línudansi ringó og pönnukökubakstri sem fyrir löngu er orðin klassísk grein. En nýjungar verða á mótinu eins og keppni í lomber, pílukasti og garðahlaupi sem er opið fyrir 18 ára og eldri.
Ekki þarf að vera skráð/ur í íþrótta- eða ungmennafélag.
Þátttökugjald á mótið er 4.900 krónur. Fyrir eitt gjald er hægt að skrá sig í margar greinar.
Nánari upplýsingar um keppnisgreinar og skráningu er hægt að finna á vefslóðinni: https://www.umfi.is/verkefni/landsmot-50plus/