Á landsmótsfundi á Hvammstanga í gærkvöldi var ákveðið að þátttökugjald á Landsmót UMFÍ 50 + sé 3000 þúsund krónur. Þátttakendur greiða þar með eitt gjald óháð fjölda greina sem keppt verður í. Innifalið í gjaldinu er frí á tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi á Hvammstanga þessa helgi og frítt á alla viðburði sem verða í gangi í tengslum við mótið kvöldvaka á föstudagskvöldið og laugadagskvöldið.
Allir geta takið þátt í mótin hvort sem þeir eru í ungmennafélagi eða ekki.
Engin takmörkun er á fjölda liða.
Keppnisgreinar á mótinu: blak, bridds, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, fjallaskokk, hestaíþróttir, golf, pútt, línudans, skák, sund, starfsíþróttir (jurtagreining, búfjárdómar, pönnukökubakstur, dráttavélaakstur og kökuskreyting, þríþraut.
Skráning og aðrar upplýsingar um mótið eru að finna á www.landsmotumfi50.is
Sjáumst öll kát og hress á landsmóti UMFÍ 50 +