Þann 30. desember sl. var haldinn kynningarfundur Ásmundar Einars Daðasonar félags- og barnamálaráðherra, Unnar Sverrisdóttur forstjóra Vinnumálastofnunar og Lárusar L. Blöndal forseta ÍSÍ með íþróttahreyfingunni um lög um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs og fyrirkomulag varðandi umsóknarferlið þar að lútandi. Fundurinn var haldinn í Microsoft Teams fjarfundabúnaðinum. Vel var mætt á fundinn eða um 180 manns þegar mest var. Á fundinum kom m.a. fram að umsóknarkerfið verði væntanlega tilbúið í lok janúar að lokinni forritunarvinnu og annarri undirbúningsvinnu fyrir verkefnið. Reynt verður að hafa það sem mest í rafrænu formi.
Ýmsar spurningar komu fram á fundinum varðandi úrræðið og útfærslur á umsóknarferlinu og verður svörum og skýringum komið á framfæri við íþróttahreyfinguna þegar lengra verður komið í undirbúningsvinnunni fyrir umsóknarferlið. Vinnumálastofnun vinnur að málinu og er það forgangsverkefni stofnunarinnar í janúarmánuði. Náið samráð og samstarf verður haft við ÍSÍ í undirbúningi og framkvæmd úrræðisins og þess gætt að sjónarmiðum og athugasemdum íþróttahreyfingarinnar verði komið á framfæri á öllum stigum málsins.
Hér fyrir neðan má finna umrædd lög og einnig efni sem farið var í gegnum á fundinum:
Lög um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Glærur Vinnumálastofnunar sem kynntar voru á fundinum.
Glærur félags- og barnamálaráðherra sem kynntar voru á fundinum.