Íþróttasjóðurinn er fyrir Íþrótta- og ungmennafélög, og fyrir þá sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta.
Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að jafnrétti í íþróttum. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.
Vakin er athygli á því að sama íþróttafélag eða sama deild innan íþróttafélags sem hefur margar deildir, getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarfresti.
Umsóknarfrestur: Næsti umsóknarfrestur er 1. október 2020, kl. 16:00. Nánari upplýsingar er að finna hér.