Íþróttamaður ársins 2014 -Baldur Haraldsson
Mynd: skagafjordur.is
Ungmennasamband Skagafjarðar og Ungmennafélagið Tindastóll boðuðu til samkomu í Húsi frítímans á Sauðárkróki laugardaginn 27. desember þar sem tilkynnt var val á íþróttamanni Skagafjarðar og íþróttamanni Tindastóls fyrir árið 2014.
7 voru tilnefndir til íþróttamanns Skagafjarðar: Arnar Geir Hjartarson (golf), Baldur Haraldsson (akstursíþróttir), Gísli Gíslason (hestaíþróttir), Helgi Rafn Viggósson (körfubolti), Jóhann Björn Sigurbjörnsson (frjálsíþróttir), Jón Friðbjörnsson (akstursíþróttir), Loftur Páll Eiríksson (fótbolti).
Baldur var kosinn íþróttamaður Skagafjarðar 2014, í öðru sæti var Jóhann Björn Sigurbjörnsson og í því þriðja var Arnar Geir Hjartarson.
Hlynur Þór Haraldsson var útnefndur sem þjálfari ársins, kvennasveit Golfklúbbs Sauðárkróks sem lið ársins og einnig voru veittar ýmsar viðurkenningar til efnilegra ungmenna.
Frétt fengin af www.skagafjordur.is