Íþróttamaður ársins UMSS

Þann 19. desember nk. mun Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) og sveitarfélagið Skagafjörður halda okkar árlegu hátíðarsamkomu þar sem tilkynnt verður hver hlýtur kosningu íþróttamanns ársins, lið ársins og þjálfara ársins. Á þessari hátíðarsamkomu er öllum þeim sem eru tilnefnir af sínum íþróttafélögum boðaðir og þeim veitt viðurkenningar en einnig fá krakkarnir okkar sem hafa verið tilnefnd til Hvatningarverðlauna UMSS sínar viðurkenningar.

Í ár eru fjórir íþróttamenn tilnefndir til Íþróttamanns ársins 2024. Það eru þau; Adomas Drungilas körfuknattleiksmaður í UMF Tindastól, Bjarni Jónasson hestamaður í Hestamannafélaginu Skagfirðing, Ísak Óli Traustason, frjálsíþróttamaður í UMF Tindastól og María Dögg Jóhannesdóttir knattspyrnumaður í UMF Tindastól.

Kosningu lýkur í dag 16.des, en þeir sem kjósa íþróttamenn, lið og þjálfara eru fimm aðilar í stjórn UMSS, þrír fulltrúar frá félags- og tómstundarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar, ritstjóri fréttablaðsins Feykis og forstöðumaður frístunda og íþróttamála í Skagafirði.

Kosið er um þrjú efstu sætin, fyrsta (1.) sæti gefur 10 stig, annað sæti (2.) gefur 7 stig og þriðja (3.) sæti gefur 5 stig.

Í ár er einungis eitt lið tilnefnt til lið ársins; meistaraflokkur kvk. í körfuknattleik UMF Tindastóll.

Til þjálfara ársins er val um 3 tilnefningar; Annika Líf Maríudóttir Noack UMF Tindastóll júdódeild, Finnbogi Bjarnason Hestamannafélaginu Skagfirðing og Sigurður Arnar Björnsson UMF Tindastóll frjálsíþróttadeild.

Öllum aðildarfélögum og deildum innan UMSS er einnig heimilt að tilnefna einn pilt og eina stúlku sem hlýtur Hvatningarverðlaun UMSS. Tilnefningin skal veitt þeim íþróttamanni sem er áhugasamur, með góða ástundun, sýnir góða hegðun innan vallar sem utan, er góður félagi og telst vera góð fyrirmynd annarra unglinga.

Til Hvatningarverðlauna UMSS árið 2024 eru eftirtaldir aðilar tilnefndir frá:

Axel Arnarsson                                  Ungmennafélagið Tindastóll Körfuknattleiksdeild     

Brynjar Morgan Brynjarsson            Golfklúbbur Skagafjarðar 

Caitlynn Morrie Sandoval Mertola  Ungmennafélagið Tindastóll Júdódeild

Emma Katrín Helgadóttir               Ungmennafélagið Tindastóll Körfuknattleiksdeild

Fjölnir Þeyr Marinósson                 Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári 

Freyja Vilhjálmsdóttir                    Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári

Freyr Hugi Herbergsson                  Ungmennafélagið Tindastóll Júdódeild

Greta Berglind Jakobsdóttir           Hestamannafélagið Skagfirðingur

Halldór Stefánsson                          Ungmennafélagið Tindastóll Frjálsíþróttadeild

Harpa Sif Hreiðarsdóttir                 Ungmennafélagið Tindastóll Knattspyrnudeild

Júlía Marín Helgadóttir                    Ungmennafélagið Tindastóll Badmintondeild

Monika Rut Garðarsdóttir                Ungmennafélagið Neisti

Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir    Hestamannafélagið Skagfirðingur

                                                       Ungmennafélagið Tindastóll Frjálsíþróttadeild       

Telma Ýr Skarphéðinsdóttir          Ungmennafélagið Tindastóll Skíðadeild

Valþór Máni Helgason                    Ungmennafélagið Neisti                               

Viktor Smári Davíðsson                  Ungmennafélagið Tindastóll Knattspyrnudeil

 

Hátíðarsamkoman Íþróttamaður ársins 2024 mun fara fram þann 19.desember nk. í Húsi frítímans kl. 20:00. 

Á hátíðarsamkomunni verður einnig veittar viðurkenningar fyrir landsliðsfólk UMSS og styrkir úr Afrekssjóði UMSS, auk þess mun Ungmennafélagið Tindastóll tilkynna Íþróttamann Tindastóls 2024.

 

Thelma Knútsdóttir
framkvæmdastjóri UMSS