Helga Eyjólfsdóttir í stjórn UMSS

Skömmu eftir ársþing UMSS varð ljóst að einn stjórnarmaður UMSS forfallaðist og var fomanni falið að leita til fulltrúa í varastjórn UMSS um að skipa autt sæti í aðalstjórn. 
Sú farsæla niðurstaða fékkst í málið að Helga Eyjólfsdóttir tók sæti í aðalstjórn en hún hefur starfað af krafti innan Vélhjólaklúbbs Skagafjarðar.

Næsti fundur UMSS verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl n.k. og mun þá boltaráð setjast á rökstóla með stjórninni um starf sumarsins.