Haraldur Þór sæmdur gullmerki UMFÍ

Haraldur Þór Jóhannsson formaður Ungmennasambands Skagafjarðar var í gærkvöldi sæmdur gullmerki UMFÍ fyrir óeigingjörn störf í þágu hreyfingarinnar og frammúrskarandi starf við Landsmót og Unglingalandsmót UMFÍ.   Gullmerki UMFÍ er æðsta viðurkenning sem veitt er innan hreyfingarinnar.  Haraldur Þór hefur verið formaður UMSS í fimm ár og þar áður starfað innan hestamannafélagsins Svaða, ungmennafélagsins Hjalta og ungmennafélagsins Neista.