Haraldur Jóhannsson kjörinn í varastjórn UMFÍ

Haraldur Jóhannsson
Haraldur Jóhannsson

Haraldur Jóhannsson fyrrverandi formaður UMSS var endurkjörinn í varastjórn UMFÍ á sambandsþingi hreyfingarinnar, sem fram fór fyrr í mánuðinum í Keflavík.  Haraldur hefur unnið gríðarlega gott starf fyrir Ungmennafélagshreyfinguna í gegnum tíðina.

Það skiptir afar miklu máli fyrir íþróttastarf í Skagafirði að hafa öfluga talsmenn í stjórn UMFÍ.  Rödd Halla í Enni hefur eflaust vegið þungt þegar ákvörðun var tekin um að halda Unglingalandsmót á Sauðárkróki á liðnu sumri.    Á sambandsþinginu sáu margir þingfulltrúar ástæðu til þess að þakka Skagfirðingum fyrir velheppnað Unglingalandsmót og er þeim kveðjum komið áleiðis hér á síðunni