Halldór Halldórsson formaður unglingalandsmótsnefndar á Sauðárkróki

Skipuð hefur verið nefnd til þess að sjá um undirbúning unglingalandsmótsins sem verður haldið nú um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki.

Nú þegar hefur nefndin verið skipuð og eru fulltrúar UMSS í nefndinni:

Halldór Halldórsson, formaður, Hrefna Guðmundsdóttir varaformaður, Sigurjón Þórðarson ritari, Gunnar Gestsson gjaldkeri og Friðrik Steinsson stjórnarmaður.  Nefndin hefur þegar haldið sinn fyrsta fund.