Göngum um Ísland er landsverkefni UMFÍ. Verkefnið er unnið í samstarfi við ungmennafélög um land allt, ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög. Ísland hefur að geyma mikinn fjölda gönguleiða og hafa nú verið valdar útvaldar gönguleiðir í hverju byggðarlagi.
Leiðabók með tæplega 300 gönguleiðum fæst gefins um land allt. Í Leiðabókinni Göngum um Ísland er lögð áhersla á stuttar, stikaðar og aðgengilegar gönguleiðir.
Fjölskyldan á fjallið er einn liður í verkefninu. Settir eru upp póstkassar með gestabókum á 20 fjöllum víðsvegar um landið, en öll þessi fjöll eiga það sameiginlegt að vera tiltölulega létt að ganga á. Póstkassi með gestabók er á Molduxa. Markmiðið er að fá fjölskyldur í létta fjallgönguferð og stuðla þannig að aukinni samveru, útivist og um leið líkamsrækt innan fjölskyldunnar.
www.ganga.is Á heimasíðunni ganga.is er að finna upplýsingar um 800 gönguleiðir á Íslandi ásamt áhugaverðum fróðleik fyrir göngu- og útivistarfólk.