Góður sigur Tindastóls á útivelli

Fræknir knattspyrnukappar í Tindastóli höfðu sigur í mikilvægum leik í 2. deildinni á Hamri og var leikurinn í 20. umferð Íslandsdmótsins, en leikurinn fór 2-4.

Síðasti heimaleikur  tímabilsins á Sauðárkróksvelli  verður leikinn gegn góðum gestum úr Garðinum þann 14. september nk. og þá er um að gera að fjölmenna og styðja liðið sem oft á tíðum  hefur leikið ágætis knattspyrnu í sumar.

Mikilvægt er að Tindastóll nái að fylgja eftir góðum leik gegn Víði.