Góður fyrri dagur á Meistaramóti Íslands

Meistaramót Íslands í frjálsum er haldið nú um helgina í Egilshöll. Eins og oft áður fóru keppendur UMSS mikinn og nældu sér í 4 sigra á fyrri degi mótsins. Ólafur Guðmundsson sigraði í hástökki án atrennu (1,61 m) og langstökki (7,06 m), Vilborg Jóhannsdóttir sigraði í hátökki án atrennu (1,30 m) og Stefán Már Ágústsson sigraði í 800 m hlaupi (2:01,21 mín).