Frjálsíþróttaskóli UMFÍ

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ verður haldinn í sumar á Sauðárkróki í fjórða sinn. Þarna komast krakkar í frábæran félagsskap, holla hreyfingu, skemmtun og útiveru. Skólinn er fyrir ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára. Aðalþjálfarar skólans verða Árni Geir Sigurbjörnsson og Gunnar Sigurðsson frjálsíþróttaþjálfari. Hér er gott tækifæri að bæta sig í frjálsum íþróttum rétt fyrir Unglingalandsmótið. Frjálsíþróttaskólinn á Sauðárkróki verður frá kl 13.00 mánudaginn 18. júlí til kl 13.00 föstudaginn 22. júlí. 

Notum tækifærið og nýtum frábær íþróttamannvirki á Sauðárkróki.

Þátttökugjald er 15.000 og er innifalið kennsla, fæði og húsnæði. Skráning á http://www.umfi.is/