Fyrirlestrar verkefnisins Sýnum karakter eru aðgengilegir á Youtube síðu Sýnum karakter hér.
Markmið verkefnisins Sýnum karakter snýr að þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum og er verkefninu ætlað að hvetja þjálfara og íþróttafélög til að leggja enn meiri og markvissari áherslur á að byggja upp góðan karakter hjá iðkendum og gera þá betur í stakk búna til að takast á við lífið auk þess að ná árangri í íþróttum. Sýnum karakter er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands.
Vefsíða Sýnum karakter.
Facebook síða Sýnum karakter.