Forsetahjóin viðstödd skóflustungu að Sundlauginnni á Hofsós
Forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, munu sækja Sauðárkrók heim um komandi verslunarmannahelgi og verða þau m.a. viðstödd setningarathöfn mótsins föstudagskvöldið 31. júlí.
Þess má geta að Ólafur Ragnar var við setningarathöfn Landsmótsins á Akureyri á dögunum en þau hjónin hafa sýnt í verki hve velviljuð þau eru íþróttahreyfingunni.
UMSS er það mikill heiður að forsetahjónin skulu koma í Skagafjörðinn en þau heimsóttu Skagfirðinga vorið 2008. Sú ferð var einkar vel heppnuð og fóru forsetahjónin víða um og voru m.a. viðstödd þegar skóflustunga var tekin að sundlauginni í Hofsósi.