Opið er fyrir umsóknir úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2019. Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 13. janúar 2020. Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna má á www.isi.is. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2018. Til úthlutunar eru 127 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar/mars. Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.
Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is