Unglingalandsmót UMFí verður á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina í sumar. Frjálsíþróttakeppnin á mótinu er geysistór. Ætla má að við þurfum nálægt 100 starfsmenn við framkvæmd hennar.
Við viljum að sjálfsögðu standa vel að mótshaldinu og bjóðum uppá starfsmannanámskeið með Birgi Guðjónssyni, formanni tækninefndar FRÍ, sunnudaginn 19. Apríl í Fjölbrautarskólanum. Við byrjum klukkan 11.00 og verðum búin uppúr kl 17.00.
Oft var þörf en nú er nauðsyn – ég vil hvetja alla sem geta að koma og taka þátt í krefjandi og skemmtilegu verkefni.
Vinsamlegast skráið ykkur á umss@simnet.is eða til Elmars frkv.stjóra UMSS í síma 453 5460 fyrir kl 18.00 á föstudag.
Fh. Frjálsíþróttaráðs UMSS, Gunnar Sigurðsson