Bikarkeppnin 16 ára og yngri - Kolbjörg sigraði í 1500m hlaupi

Bikarkeppni FRÍ 16 ára og yngri fór fram á Sauðárkróksvelli sl. laugardag. 

Sameiginlegt lið Eyfirðinga krækti í 1. sætið í stigakeppninni og náði þar með að hafa betur  í viðureign við stórlið á borð við ÍR og FH  sem lentu í öðru og þriðja sæti.

Lið UMSS stóð sig vel og bar þá hæst glæsilegur árangur Kolbjargar Kötlu Hinriksdóttur sem sigraði nokkuð örugglega í 1.500 m hlaupi.