Ársþing UMSS

Ungmennasamband Skagafjarðar
Ungmennasamband Skagafjarðar

Ársþing UMSS var haldið í Árgarði fimmtudaginn 25. mars síðastliðinn. Gestgjafar voru UÍ Smári sem sáu um stórglæsilegar og vel útilátnar veitingar sem enginn var svikinn af. Dagskrá þingsins var hefðbundin og nýr formaður kjörinn en Sigurjón Þórðarson lét af því embætti. Við stjórnartaumunum tók Hrefna Gerður Björnsdóttir og auk hennar voru kjörnir í stjórn Sigurjón Leifsson og Hjalti Þórðarson.