Ársþing UMSS

Vel heppnað ársþing UMSS var haldið í Melsgili í kvöld kl 20 í boði Íþróttafélagsins Grósku. Á þinginu var Haraldur Þór Jóhannsson endurkjörinn formaður og tveir aðrir í stjórn voru kosnir Steinunn Hjartardóttir og Margrét Stefánsdóttir. Margrét kemur ný inn í stjórnina. Fyrir sitja Guðmundur Þór Guðmundsson og Hjalti Þórðarson
Gestir á ársþinginu voru Hringur Hreinsson frá UMFÍ, Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ, Ásdís Guðmundsdóttir frá Sveitarfélaginu Skagafirði og Ómar Bragi Stefánsson framkvæmdastjóri Landsmóts. Nánar verður sagt frá þinginu seinna.